Drangsskarð 6B

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 134.900.000 kr.

Drangsskarð 6B
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
161,7 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2024
Fermetraverð
834.261 kr.

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega, nýlega og rúmgóða 5-6 herbergja efri sérhæð í 2-býli, 161,7 fm íbúð á 2 hæðum í flottu húsi (2024) Eignin er með stórum þaksvölum og sérmerktu bílastæði að Drangsskarði 6B, 221 Hafnarfjörður.

Góð staðsetning í suðurátt í Skarðshlíðinni, í göngufæri við vinsælan grunnskóla og leikskóla. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt.

// Gólfhiti

// Aukin lofthæð

// 4 rúmgóð svefnherbergi + 2 stofur

// Innréttingar frá Björninn [link]

Skápahurðir eru hvítar eða gráar að lit

// Borðplötur frá Fanntófell [link]

Eldhúsinnrétting með tækjum og búnaði frá AEG

// 98,1 fm Þaksvalir

Nánari lýsing:

Neðri hæð: 59,1 fm

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, handlaug, sturta með hertu glerskilrúmi, upphengt salerni.

Sjónvarpsrými: Er í miðrými á neðri hæð.

Geymsla: Innan íbúðar.

Herbergi: 9,6 fm. Fataskápur.

Herbergi: 9,0 fm. Fataskápur.

Efri hæð: 98,1 fm + þaksvalir

Stofa: Opin og björt með stórum gluggum, opin við eldhús.

Eldhús: Gott skápa- og borðpláss, eyja með spanhelluborði og innfelldum gufugleypi, innfelld uppþvottavél og ísskápur, ofn í vinnuhæð, góður borðkrókur.

Þvottaherbergi: Innan íbúðar, tengi fyrir skolvask, vaskur fylgir ekki. Gluggi.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, innrétting undir handlaug, sturta með hertu glerskilrúmi, upphengt salerni.

Herbergi: 9,0 fm. Fataskápur.

Hjónaherbergi: 15,0 fm. Fataherbergi.

Þaksvalir: 98,1 fm þaksvalir með glæsilegu útsýni.

Vandað harðparket og flísar á gólfum.

Lóðin er í suðurátt og er frágengin, með hellulögn og túnþökum. Inngangar/aðkoma er hellulögð.

Þetta er mjög áhugaverð eign til að skoða frekar, byggð 2024 í vinsælu nýju hverfi í Hafnarfirði.

Allar nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og

Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.