Rauðalækur 27

105 Reykjavík

Ásett verð: 139.900.000 kr.

Rauðalækur 27
Tegund
Hæð
Stærð
161,700000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1959
Fermetraverð
865.182 kr.

Lýsing

Vorum að fá í sölu virkilega glæsilega og vel umgengna samtals 161,7 fm hæð ásamt bílskúr. íbúðin er á 1. hæð með sérinngang í fallegu þríbýli á góðum stað við Rauðalæk. Frá árinu 2014 hefur verið gott viðhald á húsinu og íbúðinni.

Eignin skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr. Geymsla á jarðhæð og þar er einnig sameiginlegt þvottahús.

Birtar stærðir skv. HMS : Íbúð 125,7 fm, geymsla 6,3 fm og bílskúr 29,7 fm Samtals 161,7 fm.

Nánari upplýsingar veita:

Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er upp steyptar utanáliggjandi tröppur að aðalinngangi hússins. Þaðan er sérinngangur inn í íbúðina.

Forstofa /hol : Komið er inn í rúmgott hol með flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið niður í sameign.

Hol/borðstofa: Komið er inn í hol frá anddyri sem er mjög rúmgott og tengir allar vistaverur hússins saman. Holið er opið að borðstofu og myndar stórt og bjart rými hol-borðstofa og stofa.

Borðstofa: Inn af holinu er komið inn í rúmgóða borðstofu með útgengt út á suðursvalir. Borðstofan er opin að stofunni.

Setustofa: Inn af borðstofunni er setustofa sem liggur í sama rými.. Setustofan er rúmgóð með gluggum á tvo vegu sem gerir hana einstaklega bjarta og skemmtilega.

Eldhús: Eldhúsið er virkilega rúmgott. Komið er inn þar sem borðkrókur við glugga tekur á móti þér. Eldhúsið var endurnýjað 2016 með fallegri hvítri innréttingu og viðarborðplötu. Innréttingin nær upp í loft með góðum tækjaskáp, tengi fyrir innbyggða uppþvottavél, spanhelluborð og háfur. Flísar eru á gólfum.

Baðherbergi: Baðherbergið er fallegt og var endurnýjað 2014. Baðherbergið er flísalagt, falleg innrétting, walk in sturta með glerskilrúmi opnanlegum glugga.

Hjónaherbergi: Mjög stórt og rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi.

Svefnherbergi I : Inn af anddyri er rúmgott svefnherbergi með góðum gluggum á tvo vegu ásamt fataskáp.

Svefnherbergi II: Inn af holi. Nýtt sem hjónaherbergi í dag. Góður fatskápur. Parket á gólfi.

Þvottaherbergi/geymsla: Frá anddyri er gengið niður breiðar og góðar flísalagðar tröppur í sameign að sérgeymslu og sameiginlegu þvottahúsi.

Bílskúr: Virkilega góður 29,7 fm bílskúr er norðanmegin við húsið. Inngönguhurð er á hlið skúrsins sem liggur að inngangi íbúðar. Fyrir framan innkeyrsluhurð er mjög gott bílastæði sem er aðgengilegt frá botnlanga Rauðalæks 29-31.

Bílskúrnum er skipt upp í lokaða vinnustofu og opið rými.

Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt eiganda.

2014 - Nýjarskólplagnir lagðar út að götu og drenað umhvefis húsið.

2014 - Dregið nýtt í rafmagnslagnir innan íbúðar, skipt um alla rofa og innstungur nema í eldhúsi. Sett ný rafmagnstafla fyrir hæðina.

2014 - Baðherbergi endurnýjað í september það ár.

2016 - Allir ofnar endurnýjaðir og kranar innan íbúðar.

2016 - Sett nýtt parkett á alla íbúðina.

2016 - Eldhús endurnýjað ásamt rafmagni, lögnum og eldhústækjum. Eldhúsinnrétting frá Innval og gólf flísalagt.

2018 - Hellulagt milli bílskúrs íbúðarhúss

2020 - Skipt um glugga í öllum svefnherbergjum innan íbúðar, geymslu, borðstofu og stofu.

2021 - Sameign máluð og flísalögð.

2021 - Þak slípað upp menjað og málað.

2023 - Húsið málað utan

2023 - Ný uppþvottavél og helluborð.

2025 - Allir gluggar endurnýjaðir í sameign.

Frábær staðsetning í nágrenni við útivistarparadísina í Laugardal með öllu því sem hann hefur upp á að bjóða. Stutt er í skóla, leikskóla sem og Laugardalslaug og World Class, auk þess að ýmsar sérverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri.