Egilsbraut 25

740 Neskaupstaður

Egilsbraut 25
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
819,999987792969 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1977

Lýsing

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Egilsbraut 25, Neskaupstað.

Um er að ræða rammbyggt og vandað skrifstofuhúsnæði í hjarta Neskaupstaðar.

Húsið hefur fengið gott viðhald en þó er kominn tími á eitt og annað eins og er með öll hús.

Húsið hefur 2 fasteignanúmer.

Annarsvegar jarðhæðin ásamt viðbyggingu austan við húsið og hluta niðurgrafins kjallara þar sem eru eldtraustar geymslur, stærð alls 547,8 fermetrar.

Hinsvegar skrifstofur á efri hæð hússins ásamt eldtraustum geymslum í kjallara, stærð geymslanna sem tilheyra þeim hluta er alls 59.2 fermetrar, heildarstærð þess eignarhluta er 272.2 fermetrar.

Húsið hentar vel fyrir skrifstofur eða stofnun, jafnvel hægt að breyta því í íbúðir.

Möguleiki gæti verið að skipta húsinu formlega í 2 fasteignir, jafnvel 3.

Eignarhlutinn á efri hæðinni skiptist í nokkrar skrifstofur sem flestar hafa verið í útleigu sem slíkar eða fyrir lítil þjónustufyrirtæki.

Einnig er skjalageymsla á miðri hæðinni,

Eldhús með upphaflegri innréttingu og rúmgóð snyrting sem einnig er upprunaleg.

Gólfefni eru að mestu ágætt parket.

Gengið er inn á hæðina um stiga frá inngangi á jarðhæð og liggur sá stigi einnig niður í kjallarann þar sem eldtraustu geymslurnar eru.

Götuhæðin ber með sér að hafa verið endurinnréttuð á vandaðan hátt og lítur vel út.

Komið er inn í forstofu og úr henni inn í stóra sal með suðurgluggum og kúptum þakgluggum.

Með þeirri tilhögun eru allir veggir nema suðurveggurinn gluggalausir og nýtast því vel hvort sem er til að hengja á eða láta húsgögn standa uppvið.

Ein skrifstofa og lítil biðstofa eru stúkuð af í salnum.

Stigi liggur úr salnum upp hálfa hæð þar sem er biðstofa, salerni, skrifstofa og fundarherbergi.

Væri farið í að skipta húsinu i fleiri fasteignir eða eignarhluta til útleigu mætti auðveldlega stúka þetta rými af sem sérstakt skrifstofurými eða litla íbúð og gæti það þá verið 3ja aðgreinda rýmið í húsinu.

Einnig er stigi úr salnum niður hálfa hæð þar sem er vandað eldhús, snyrtingar og önnur starfsmannaaðstaða.

Við hinn enda salarins eru skjalageymslur og stigi niður í kjallarann.

Áfast húsinu er nokkuð stórt tæknirými sem gengið er í frá bílastæði vestan við húsið.

Næg bílstæði eru við húsið.