Fákafen 13 eign 101

581 Siglufjörður

Fákafen 13 eign 101
Stærð
81,9 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1980

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fákafen 13 eign 101 / norður endi - Um er að ræða mikið endurnýjað 12 hesta hús á Siglufirði.

Eignin er skráð 81,9 m² að stærð og með skráð byggingarár 1980.

Eignin skiptist í 6 stíur, gang, kaffistofu, hnakkageymslu og hlöðu.

Gólf í hesthúsinu er steypt og milligerði eru vönduð, ryðfrí og með plast borðum á milli. Hvít báruklæðning er í loftum og á hluta veggja. Stærðin á stíunum er 2,1 *3,15 m

Kaffistofa er með flísum á gólf og panil á veggjum og hvítri innréttingu.

Hnakkageymsla er með steyptu gólfi og þar er laus rafmagnsofn.

Búið er að byggja við húsið til vesturs hlöðu og geymslu, óeinangað og með möl í gólfi.

Annað

- Rúmgott gerði er með austur, norður og hluta af suðurhlið hússins.

- Rafmagnskynding og kalt rennandi vatn. Hitatubba er á kaffistofunni.

- Húsið er sambyggt með Fákafeni númer 13 og 17

- Eignarhlutur í húsinu er 40,09 %

Óskað er eftir tilboði í eignina - Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.