Hringbraut 48

101 Reykjavík

Ásett verð: 99.800.000 kr.

Hringbraut 48
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
129,9 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1937
Fermetraverð
768.283 kr.

Lýsing

Vönduð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á vinsælum og eftirsóttum stað að Hringbraut 48 í 101 Reykjavík.

Íbúðin er mikið endurnýjuð og er á fyrstu hæð í fallegu húsi. Með íbúðinni fylgir sér bílastæði við vesturhluta hússins.

* Eigandi er opin fyrir skiptum á minni íbúð á svipuðu svæði ( Vesturbæ / Miðbæ )

* 129,9m2 hæð / fjölbýli

* Íbúðin mikið endurnýjuð árið 2018.

* 4 svefnherbergi

Helen Sigurðardóttir, Lgf / 766 9500 / helen@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Ráð fyrir kaupendur

Birt stærð samkv. HMS er 129,9 m2.

Eignin skiptist í gang, eldhús, 4 svefnherbergi, stofu, baðherbergi, geymslu, sameiginlega hjólageymslu og þvottahús.

Gengið er inn í gang með fatahengi og nýlegu parketi á gólfi.

Eldhús hefur verið endurnýjað með ágætri innréttingu, ofn, helluborð, vegghillur og rými fyrir stórt eldhús/borðstofuborð. Nýlegt parket á gólfi.

Þrjú svefnherbergi sem eru rúmgóð og með nýlegu parketi á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp og nýlegu parketi á gólfi.

Stofan er björt og myndar opið rými með eldhúsi. Nýlegt parket á gólfi.

Baðherbergi er endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf, vegghengt klósett og baðkar/sturta.

Geymsla , (16m2) er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi þar sem pláss er fyrir þvottavél. Möguleiki er að nýta hluta geymslunnar sem vinnuherbergi.

Innangengt er frá íbúð að sameiginlega rýminu og útgengt út í bakgarð/port. í kjallara er er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Einkabílastæði fylgir íbúðinn og er við vesturhluta hússins.

Gluggar voru endurnýjaðir 2019 og sett í tvöfalt hljóðeinangrandi gler.

Frábær staðsetning. Göngufæri í leikskóla, grunnskóla og annað menningarlíf miðbæjar Reykjavíkur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 450 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.