Langamýri 28

210 Garðabær

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Langamýri 28
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,69999961853 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1987
Fermetraverð
689.052 kr.

Lýsing

**BÍLSKÚR**

**AUKIN LOFTHÆÐ**

Lind fasteignasala og Hrafn Valdísarson löggiltur fasteignasali kynna snyrtilega og bjarta 3-4ja herbergja endaíbúð með aukinni lofthæð á annari hæð með sérinngangi af svölum og sérstæðum bílskúr á þessum eftirsótta stað í Garðabænum.

Samkvæmt þjóðskrá Íslands er eignin skráð 108,7 fm2 og þar af bílskúr 23,4 fm og sér geymsla í sameign 1,3 fm.

Frábær fjölskylduíbúð á rólegum og góðum stað í Garðabæ. Stutt í matvörubúð, skóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug

Allar upplýsingar veitir

Hrafn Valdísarson Löggiltur fasteignasali í síma 845-9888 eða hrafn@fastlind.is.

Nánari lýsing:

Komið inn í parketlagt anddyri með góðu skápaplássi.

Barnaherbergi með parketi á gólfi, stigi upp í sérsmíðað rúm sem fylgir.

Baðherbergi með flísum á gólfi og baðinnréttingu, Hlaðinn sturtuklefi með mósaik flísum.

Á gangi er gott skápapláss með skápum til beggja handa. Þvottarými með innréttingu og vaski.

Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir.

Eldhús: Með parketi á gólfi, snyrtilegri hvítri innréttingu með færanlegri eyju.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi.

Stigi frá gangi upp í rými sem er ekki skráð inn í fm tölu eignar c,a 10 fm2 með loftglugga.

Sameign er lítil geymsla og sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Snyrtilegur sérstæður enda bílskúr skráður 23 fm.

Einnig er sérmerkt stæði fyrir framan hús.