Skipalón 10

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Skipalón 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
73,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2012
Fermetraverð
882.993 kr.

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð í klæddu lyftuhúsi, við Skipalón 10, með stæði í bílgeymslu og hellulagðan sérafnotaflöt á lóð. Eignin er laus við kaupsamning. Íbúð fyrir 50 ára og eldri. Fallegt útsýni til sjávar.

Eignin Skipalón 10 íbúð 103 er skráð hjá HMS sem svo: birt stærð 73,5fm þar af geymsla í kjallara 10,7 fm, stæði í bílgeymslu merkt 22.

Skipulag íbúðarinnar:

Stofa : björt og rúmgóð, viðarparket á gólfi, útgengi á hellulagða verönd sem er sérafnotaflötur íbúðar.

Eldhús : opið inn í stofu. Góð innrétting frá Parka, viðarparket á gólfi.

Gangur : viðarparket á gólfi, útifataskápur.

Herbergi : rúmgott, fataskápur, viðarparket á gólfi.

Baðherbergi : allt flísalagt, veggir og gólf, góð innrétting, sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt klósett.

Þvottaherbergi : flísar á gólfi, innrétting og tengi fyrir þvottavél.

Í kjallara er sérgeymsla íbúðarinnar. Hillur geta fylgt.

Bílastæði í bílageymslu er merkt 22. Lagt er fyrir rafhleðslu en hleðslutengi ekki fyrir hendi.

Í vel um genginni sameign er hjóla- og vagnageymsla, dekkjageymsla auk sérgeymsla. Auk þess er fundasalur sem er eign húsfélagins og er hann leigður til íbúða hússins og fleiri aðila.

Stutt í alla þjónustu og miðbæinn í Hafnarfirði, niður að höfn og á golfvöllinn.

Hér er myndband af eigninni með húsgögnum

Hér er hægt að fá söluyfirlit sent

Nánari upplýsingar veita:

Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.