Eyjabakki 6

109 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Eyjabakki 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
110,199999237061 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1969
Fermetraverð
634.301 kr.

Lýsing

Borgir fasteignasala kynnir eignina Eyjabakki 6, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 204-7317 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Eyjabakki 6 er skráð sem 3-4ja herbergja íbúð. Birt stærð 110.2 fm.

Eignin er staðsett í enda sem snýr í suð-vestur á 2.hæð með 24,8 fm bílskúr og 7,1 fm geymslu.

Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.

Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.is.

Rúmgóð endurýjuð íbúð í Breiðholti

Hjónaherbergi með nýlegum tvöföldum skáp.

Búið er að gera barnaherbergin tvö að einu stóru en auðvelt að breyta aftur.

Eldhús/stofa í opnu björtu rými. Nýleg innrétting í eldhúsi með innfeldum vask, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél,veggháf og kvartstein á borðum.

Svalir snúa í suð-vestur. Fallegt útsýni yfir Elliðaárdalinn og í átt að Esju.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar og með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: í kjallara

Bílskúr: Góður endabílskúr með opnalegum glugga á hliðinni, upphitaður með köldu vatni. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði.

Sameiginleg vagna-og hjólageymsla er staðsett í sameign í kjallara hússins. Árið 2023 var skipt um gler og gluggalista eftir þörfum í húsinu og tréverk málað. Ný gler í stofugluggum norður.

Árið 2022 brotinn niður veggur í eldhúsi og ný eldhúsinnrétting og tæki sett upp. Parket sett á alrými og opinn fataskápur á forstofugagni. Dregið nýtt rafmagn í alrými, eldhús og svalir skipt um tengla og rofa í öllum herbergjum.

Árið 2019 var skipt um fataskáp og gólfefni í svegnherbergjunum.

Árið 2015-2016 var skipt um alla ofna í íbúðinni fyrir utan einn inná baðherberginu.

Árið 2014-2015 var þak yfirfarið og skipt um þakrennur. Skipt um gler í minna herbergi.

Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar.

Umhverfi: Bílastæðin eru staðsett fyrir framan blokkina en leiksvæðið með rólum og grasflöt er staðsett fyrir miðju hússins. Staðsettning eignarinnar er góð og er því stutt í sem dæmi Mjódd þar sem öll helsta þjónusta er. Stutt í strætó, stutt í gönguleiðir sem dæmi Elliðaárdalinn, stutt í skóla,leikskóla og Breiðholtslaug.