Baugakór 28

203 Kópavogur

Ásett verð: 108.900.000 kr.

Baugakór 28
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
130,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
836.406 kr.

Lýsing

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og fallega fjögurra herbergja hæð með sérinngangi á annarri hæð við Baugakór 28 í Kópavogi.

⭐️ Frábær staðsetning

⭐️ Fjórbýli

⭐️ Sérinngangur

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, hol/sjónvarpsstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu innan íbúðar. Eigninni fylgja tvö bílastæði á lóð. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 130,2 fm.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.

Geymsla: Inn af forstofunni.

Eldhús: Parket á gólfi. Viðarinnrétting. Flísar á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og vaskur. Borðkrókur í rýminu og gluggi.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Bjart og fallegt rými. Útgengt út á rúmgóðar svalir frá rýminu.

Hol/sjónvarpsstofa: Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskáp.

Tvö barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápar.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðinnrétting, upphengt salerni, hornbaðkar, sturtuklefi og handklæðaofn. Gluggi í rýminu.

Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting með vaski. Gluggi í rýminu.

Gólefni eignar: Parket og flísar.

Annað:

Um er að ræða fjölskylduvæna eign með góðu skipulagi. Hún er mjög vel staðsett, en stutt er í leikskólana Kór og Baug, Hörðuvallaskóla og íþróttaaðstöðuna í Kórnum. Þá eru verslun Krónunnar og önnur þjónusta jafnframt stutt frá.

Allar frekari upplýsingar veitir:

Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is