Kelduland 4

800 Selfoss

Ásett verð: 96.800.000 kr.

Kelduland 4
Tegund
Parhús
Stærð
173,700000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
557.283 kr.

Lýsing

Kelduland 4, Selfossi. Í einkasölu.

Um er að ræða rúmgott og vel skipulagt 173,7 m² parhús, byggt árið 2018. Þar af er 46,7 m² bílskúr. Húsið er byggt úr timbri en klætt að utan með bárujárni, vindskeiðar eru úr áli og innskot við anddyri er klætt með flísum. Eignin skiptist meðal annars í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Auk þess er herbergi og þvottahús inn af bílskúr. Innangengt er úr íbúðinni í bílskúrinn. Gólfhiti er í húsinu og stýringar fyrir gólfhitakerfið hafa verið settar upp. Innkeyrsla er steinsteypt og í henni er lokað snjóbræðslukerfi. Steypt verönd liggur meðfram húsinu og þar er heitur pottur.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð.

Eldhús: Svört eldhúsinnrétting frá IKEA með steinborðplötum frá Granítsmiðjunni. Tvöfaldur ísskápur og útgengt á verönd.

Stofa: Flísar á gólfi.

Svefnherbergi I: Flísar á gólfi.

Svefnherbergi II: Flísar á gólfi.

Svefnherbergi III: Flísar á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting með handlaug.

Þvottahús: Flísalagt og með hvítri innréttingu með tækjum í vinnuhæð, og fataskápum.

Bílskúr: 46,7 m² rúmgóður og flísalagður bílskúr með innréttingu og rafmagnsopnara á bílskúrshurð. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrsins.

Herbergi er innaf bílskúr: Flísalagt og með fataskáp. Útgengt er úr herberginu á baklóð.