Völuteigur 6
270 Mosfellsbær

- Tegund
- Atvinnuhúsnæði
- Stærð
- 259,9 m²
- Herbergi
- 0
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1962
Lýsing
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Völuteigur 6, 270 Mosfellsbær – 260 fm vönduð atvinnu- og íbúðareign með miklum möguleikum.
Rúmgott og vel skipulagt húsnæði á tveimur hæðum, staðsett á góðum stað í Mosfellsbæ. Eignin hentar sérstaklega vel sem blandað atvinnu- og íbúðarhúsnæði, þar sem neðri hæð er hugsuð sem atvinnuhúsnæði og efri hæð nýtist sem íbúð, skrifstofur eða til blandaðrar nýtingar.
Með litlum breytingum er mögulegt að skipta eigninni upp í tvær sjálfstæðar einingar. Eignin er í útleigu og getur leigusamningur fylgt með.
Hér er um að ræða fjölhæfa eign með mikla möguleika til rekstrar, búsetu eða fjárfestingar.
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Neðri hæð – 135 fm (atvinnuhúsnæði) Opið og rúmgott vinnu- og rekstrarrými
Rými sem hentar vel fyrir móttöku, fundi, skrifstofur eða aðra starfsemi
Tvö salerni, annað með ræstiaðstöðu og möguleika á sturtu
Um 3 metra lofthæð.
Gott geymslurými með aðgangi að sameiginlegum neyðarútgangi
Neðri hæðin er í dag notað sem geymslurými.
Efri hæð – 125 fm Stálstigi með glerhandriði tengir hæðir
Bjart rými með parketi og möguleika á svalahurð
Eldhús með góðri vinnuaðstöðu og stórri eyju
Auka herbergi sem hentar vel sem skrifstofa eða svefnherbergi
Baðherbergi með sturtu úr hertu gleri, upphengdu salerni og flísum
Tengi fyrir þvottavél og þurrkaras
Utandyra
Mjög stórt bílaplan / sérafnotareitur fyrir framan húsið
Eignin hefur verið byggð og innréttuð af vandvirkni og býður upp á fjölbreytta möguleika til framtíðarnýtingar.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661-7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is
Við hjá STOFN FASTEIGNASÖLU vinnum með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN FASTEIGNASALA – setjum þig í fyrsta sætið.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.