Hlíðartröð 1 Dalvík

621 Dalvík

Ásett verð: 41.900.000 kr.

Hlíðartröð 1 Dalvík
Tegund
Sumarhús
Stærð
109 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1992
Fermetraverð
384.404 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Hlíðartröð 1 (áður Hamarkot 2), Dalvíkurbyggð.

Fallegt 77,5 fm. sumarhús ásamt 31,5 fm. geymsluhúsi, samtals 109 fm., á u.þ.b. eins hektara leigulóð sem stendur rétt áður en keyrt er inn til Dalvíkur.

Húsið er byggt 1992 og geymsluhúsið 2005. Það stendur á skjólgóðum stað og er í u.þ.b. 30 mínútna akstursfjarlægt frá Akureyri.

Eignin skiptist í; forstofu eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svefnloft og rúmgóða stofu, ásamt rúmgóðu geymsluhúsi sem stendur aftan við húsið.

Svefnloft er yfir hluta hússins.

Lýsing eignar:

Anddyri , spónaparket og fatahengi.

Eldhús , viðarinnrétting, tvær eldunarhellur og aðstaða fyrir þvottavél. Gott vinnupláss.

Baðherbergi er með sturtu, flísar á gólfi og plötur á veggjum. Gluggi með opnanlegu fagi.

Svefnherbergin eru tvö í húsinu. Spónaparket á gólfum og fataskápur í öðru þeirra.

Stofa er í opnu rými þar sem hátt er til lofts. Spónaparket á gólfi. Falleg kamína í stofu. Gengið út á stóra og skjólgóða timburverönd.

Svefnloft , gengið upp stiga í stofu. Parket á gólfi.

Útigeymsla , 31,5 fm. einangruð og með rafmagni.

Annað:

- Húsið er með hitaveitu

- Þak endurnýjað að mestu fyrir fáum árum.

- Klæðning á eldra húsi ( er eldhús í dag) endurnýjuð fyrir fáum árum.

- Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir.

- Góð timburverönd sunnan við hús.

- Stór og góð leigulóð.

- Sannkallaður sælurætur.

- Mikil veðursæld er á þessu svæði og er það mikil útivistarparadís.

- Hægt er að stunda fjallaskíðamennsku á heimsmælikvarða í næsta nágrenni.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar;

Arnar s. 898-7011 arnar@eignaver.is

Begga s. 845-0671 begga@eignaver.is

Tryggvi s. 862-7919 tryggvi@eignaver.is