Öldugata 15
220 Hafnarfjörður
Ásett verð: 131.900.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 134,2 m²
- Herbergi
- 6
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1950
- Fermetraverð
- 982.861 kr.
Lýsing
Öldugata 15 - Hafnarfirði
STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjart og fallegt 5 herbergja tvílyft einbýlishús á eftirsóttum stað við Öldugötu 15, Hafnarfirði.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og hefur verið breytt á smekklegan hátt. Húsið var klætt að utan með álklæðningu og skipt hefur verið um glugga og gler.
Eignin er skráð samtals 134,2 fm skv. HMS. Fallegur og gróinn garður með verönd
4 svefnherbergi (hægt að bæta við fimmta)
Baðherbergi og gestasalerni
Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir og húsið klætt að utan
Sérsaumaðar hangandi gardínur í stofu og á gangi fylgja
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
Efri hæð:
Á aðalhæð er komið inn í flísalagt andyrri með fataskáp.
Gangur / hol með máluðu viðargólfi. Sérsaumaðar hangandi gardínur frá Vogue fylgja.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu, málað viðargólf. Sérsaumaðar gardínur frá Vogue sem fylgja,
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og vifta, tengi fyrir uppþvottavél, dúkur á gólfi.
Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og máluðu viðargólfi.
Flíslagt salerni með innréttingu og flísum á gólfi, möguleiki á að bæta við sturtu.
Háaloft er yfir hluta efri hæðar.
Gengið er niður stiga á neðri hæð þar serm eru þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Herbergi I er rúmgott með fataskáp og harðparketi á gólfi (var tvö herbergi áður, búið að sameina í eitt stórt).
Herbergi II með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Herbergi III með fataskáp, málað viðargólf.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, baðkar, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með innréttingu og vinnuborði, flísar á gólfi.
Útgengt er í garðinn frá neðri hæð - fallegur og gróinn garður með góðu útisvæði.
Skv.seljanda:
Þakjárn og þakpappi endurnýjað 2012
Verönd/sólpallur settur bakvið og á hliðum 2012-2014
Gluggar og gler endurnýjaðir árið 2019 (nema tveir gluggar í kjallara)
Húsið klætt að utan með álklæðningu frá Áltak 2019
Sett var nýtt grindverk 2024
Miðstöðvarofnar á efri hæð endurnýjaðir 2013-2018
Dregið í nýtt rafmagn á efri hæð 2021 (nema í eldhúsi)
Dregið í nýtt rarfmagn á baðherbergi neðri hæðar og einu svefnherbergi 2014
Baðherbergi á neðri hæð tekið í gegn 2018
Þetta er einstaklega fallegt og bjart hús miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem að skólar, verslanir og helsta þjónusta er í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070 , gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080 , atli@stofanfasteignir.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.