Suðurmýri 58

170 Seltjarnarnes

Ásett verð: 214.900.000 kr.

Suðurmýri 58
Tegund
Einbýlishús
Stærð
222,200000762939 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2008
Fermetraverð
967.147 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu:

Nýlegt og fallegt, vel skipulagt 222,2 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi á tveimur hæðum að meðtöldum 38,2 fermetra innbyggðum bílskúr og stórum svölum með heitum potti.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.

Nánari lýsing:

Eignin er á tveimur hæðum .

1. hæð : Komið er inn í rúmgóða forstofu á neðri hæðinni og þar inn af er eitt svefnherbergi. Einnig eru tvö önnur svefnherbergi , sjónvarpshol og baðherbergi með baðkari og sturtu á neðri hæðinni ásamt tvöföldu þvottahúsi og stórum bílskúr (innangengt).

2. hæð : Á efri hæðinni er eldhús með stórri eyju, stofa , borðstofa og hjónaherbergi með sér fata- og baðherbergi með sturtu. Út frá stofunni er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir til suðurs með heitum potti (teiknuð hefur verið svalalokun).

Gólfhiti er á báðum hæðum.

Stórir og fallegir gluggar eru í húsinu.

Lóðin var hönnuð af Birni landslagsarkitekt og afmarkast hún bakatil með steyptum garðvegg. Hlið er á veggnum Eiðistorgs megin svo auðvelt er að koma aftan að húsinu þar sem er annar inngangur í húsið.

Á þaki er einangrun og dúkur frá Makron og þar ofan á er svo sjávarmöl notuð sem farg. Þakkanturinn er byggður úr timbri með heitgalvanhúðuðum plötum.

Á svölunum er einangrun úr harðpressari ull og þar ofan á er asfaltdúkur.

Gluggarnir eru úr timbri með álkápu og steyptir að hluta og eru frá Gluggasmiðjunni. Opnanleg fög eru úr áli sem og rennihurð út á svalir.

Niðurföllin eru úr áli.

Húsið var málað árið 2021 .

Eignin er staðsett í hjarta bæjarins þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni og bæjarmörkin við Vesturbæinn í Reykjavík eru bakvið húsið. Stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla, sund, íþróttir og góðar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á kristjan@trausti.is