Ásgarður 26

108 Reykjavík

Ásett verð: 54.900.000 kr.

Ásgarður 26
Stærð
48,2 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Fermetraverð
1.139.004 kr.

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Ásgarð 26, 108 Reykjavík:

Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsetta 2 herbergja íbúð í kjallara í endaraðhúsi á þremur hæðum á frábærum stað í Fossvoginum. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 48.2 fm. Eignin er mikið endurnýjuð að innan sem utan. Gott aðgengi er að húsinu og sér bílastæði fyrir framan eignina og sameiginleg stæði á austurhlið hússins. Stutt er í grunn- og leikskóla og ýmsa alhliða þjónustu.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Forstofa, stofa / borðstofa, eldhús, hjónaherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, anddyri og stigagangur.

Nánari lýsing:

Kjallari:

Forstofa: Með fatahengi, parket á gólfi.

Stofa / borðstofa: Rúmgóð, parket á gólfi.

Eldhús: Hvít innrétting, eldavél, vifta, parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott, fataskápur, útgengi út í suðurgarð, parket á gólfi.

Baðherbergi: Endurnýjað 2020. Hvít innrétting og speglaskápur, walk in sturta, upphengt salerni, fallegar flísar á veggjum og gólfi.

Sérgeymsla: 1,5 fm sérgeymsla (merkt 0003), málað gólf.

Sameign í kjallara:

Anddyri: Flísar á gólfi.

Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi.

Stigagangur: Stigi upp í íbúð á fyrstu hæð, ullarteppi á gólf.

Húsið: Ásgarður 26-32 er steinsteypt hús sem byggt er 1960. Gólfhiti er í íbúð í kjallara, anddyri og þvottahúsi í kjallara. Íbúðin er ekki niðurgrafin. Innanhúss arkitektinn Guðrún Atladóttir hefur teiknað flestar breytingar sem gerðar hafa verið á eigninni.

Lóð: Sameiginleg lóð fyrir báðar íbúðirnar á baklóð framan við Ásgarð 26.

Staðsetning: Smellið hér.

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignirnar mikið að innan sem utan s.s:

* 2022-2023 Útveggir viðgerðir og steinaðir.

* 2022-2023 Nýjir gluggar og gler.

* 2022-2023 Ný svalahurð.

* 2019-2020 Nýtt skólp (Undir húsi og út í garð).

* 2019-2020 Nýjar neysluvatnslagnir.

* 2020 Gólfhiti í íbúð, sameiginlegu anddyri og þvottahúsi í kjallara.

* 2020 Baðherbergi endurnýjuð í hólf og gólf.

* 2020 Nýjar innihurðar (Ekki geymslu).

* 2020 Nýtt ullarteppi á stiga upp á 1 hæð.

* 2017 Vesturgafl klæddur.

* 2016 Skipt um járn á þaki.

* 2016 Viðgerð á útitröppum.

* 2014 Austurgafl klæddur.

* Rafmagn mjög mikið endurnýjað samhliða öðrum framkvæmdum.

Virkilega fallegar og mikið endurnýjaðar eignir miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Eignin á 1 og 2 hæð er einnig á sölu og hér er vefslóðin á hana: Vefslóð á eignina: Smellið hér.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.