Hjallavegur 27
104 Reykjavík
Ásett verð: 64.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 76,3 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1946
- Fermetraverð
- 850.590 kr.
Lýsing
Miklaborg fasteignasala og Ingimundur Ingimundarson lgf. kynna til sölu Hjallaveg 27, fallega og vel skipulagða 76,3 fm þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í snyrtilegu og vel við höldnu tvíbýlishúsi . Eignin er með sérinngangi og aðgengi að virkilega fallegum garði við húsið.
Frábær fyrstu kaup, eign sem vert er að skoða .
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 76,3 fm, Íbúðin er skráð 72,3 fm og geymsla innan íbúðar 4 fm .
Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Auk þess er aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi .
Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu. Við endann á forstofu er gengið inn í svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi. Frá forstofu er komið inn í hol með harðparketi.
Baðherbergi er með sturtu, innréttingu og flísalögðu gólfi.
Eldhús er með eikarinnréttingu og harðparketi á gólfi. Inn af eldhúsi er góð sérgeymsla . Frá eldhúsi er jafnframt innangengt í rúmgott sameiginlegt þvottahús.
Hjónaherbergi er rúmgott, með harðparketi og góðum fataskáp.
Stofan er björt og rúmgóð með harðparketi. Úr stofu er gengið beint út í garð hússins. Garðurinn er virkilega fallegur, gróinn og skjólsæll með hellulögðu svæði, grasflöt og trjágróðri og býður upp á góða útiveru.
Hjallavegur 27 er vel skipulögð þriggja herbergja eign með sérinngangi, tveimur góðum svefnherbergjum og beinu aðgengi úr stofu að fallegum garði auk þess sem örstutt gögnufæri er í Laugardalinn og alla þá þjónustu sem þar er að finna.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is