Húsasund 15

805 Selfoss

Ásett verð: 34.900.000 kr.

Húsasund 15
Tegund
Sumarhús
Stærð
66,5000003814697 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
1975
Fermetraverð
524.812 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Fallegt og vel viðhaldið eldra sumarhús á góðum stað í Hraunborgum í Grímsnes og Grafningshreppi.

Húsið stendur á 5.000 m2 leigulóð í grónu umhverfi skammt frá þjónustumiðstöð, sundlaug og 9 holu golfvelli sem eru á svæðinu.

Eignin samanstendur af eldra A húsi 40,9m2 að stærð og gestahúsi sem er 25,6m2 að stærð, samtals 66,5m2

A-húsið er byggt árið 1975 er á steyptri plötu og hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og er í góðu ástandi. Gestahúsið er byggt árið 2014 og er mjög snyrtilegt.

Nánari lýsing:

Í aðalhúsinu er komið inn í flísalagða forstofu en innaf því er flísalagt baðherbergi en þar er góð sturta.

Innaf forstofu er parketlagt svefnherbergi.

Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi og í eldhúsi er snyrtileg innrétting. Í stofu er útgengt á góðan sólpall.

Í stofu er stigi upp á svefnloft sem skiptist í gott parketlagt herbergi og opið rými.

Gestahúsið skiptist í herbergi með lítilli innréttingu og baðherbergi með sturtu.

Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið.

Lóðin er gróin og skjólgóð.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is