Fjölnisgata 1a eignarhluti 101

603 Akureyri

Ásett verð: 69.500.000 kr.

Fjölnisgata 1a eignarhluti 101
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
231,9 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1977
Fermetraverð
299.698 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fjölnisgata 1a eignarhluti 101 - Vel staðsett iðnaðarbil, vesturendi og með þremur innkeyrsluhurðum.

Eignin er staðsett á áberandi stað og með gott auglýsingagildi.

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **

Eignin er skráð 231,9 m² að stærð en inn í því er 37,7 m² milliloft sem búið er að taka niður.

Grunnflöturinn er 194,2 m² að stærð og er loftin tekin upp í allri eigninni.

Þrjár innkeyrsluhurðar og möguleiki að keyra í gegn. Tvær á norðurhliðinni og ein á suður hliðinni. Gönguhurð er í annarri hurðinni að norðan.

Annað

- Eignin þarfnast endurbóta.

- Sér hitaveitumælir og sér rafmagnsmælir.

- Möl er í stærstum hluta lóðar.

- Möguleiki er að skipta eigninni upp í minni einingar

- Hér er um að ræða eign sem hentað getur fyrir fjölbreyttan rekstur.

- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu :

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits :

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.