Borgartún 24

105 Reykjavík

Ásett verð: 79.500.000 kr.

Borgartún 24
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
80,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
991.272 kr.

Lýsing

Valhöll kynnir glæsilega útsýnisíbúð á 2 hæð í vel staðsettri nýbyggingu við Borgartún 24, Reykjavík.

Íbúðin afhendist fullbúin með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Stæði í bílageymslu.

SELJANDI SKOÐAR ÝMIS SKIPTI

Sjá link af öllu húsinu, umhverfi og staðsetningu íbúða

B24.is

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 207 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0207, F2518336. 3ja herbergja endaíbúð með sér inngangi.

Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 80,2 fm, þar af er íbúðarrými 72,4 fm og sérgeymsla er 7,8 fm.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í suðvestur.

Sérstæði í bílageymslu (B32) fylgir íbúðinni.

* Frábær staðsetning í grónu hverfi. Steinsnar frá miðbænum og Laugardalnum. Frábært útsýni er úr mörgum íbúðum.*

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.

Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.

Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.

Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.

Allar nánari upplýsingar veita þær Elín Viðarsdótttir í s. 695-8905 eða elin@valholl.is og Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@valholl.is