Furuvellir 13

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 164.900.000 kr.

Furuvellir 13
Tegund
Einbýlishús
Stærð
226,600000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2005
Fermetraverð
727.714 kr.

Lýsing

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ AÐ FURUVÖLLUM 13 Í HAFNARFIRÐI.

Um er að ræða vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum tvöföldum bílskúr á fallegum og góðum stað.

Húsið er vel staðsett á hornlóð með veröndum, heitum potti, góðum útigeymslum og góð bílastæði.

Vandað hús með góðum innréttingum og gólfefnum, gólhiti er í öllu húsinu.

Fallegt og barnvænt hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, sund og útivist.

EIGANDINN SKOÐAR SKIPTI Á MINNI EIGN

Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 (gudjon@fjarfesting.is).

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.

Gestasnyrting með flísum á gólfi og möguleika á að setja upp sturtu (tengingar til staðar).

Fallegt opið eldhús með flísum á gólfi og borðkrók við glugga.

Rúmgóð og björt samliggjandi stofa og borðstofa með flísum á gólfi. Stofurnar eru með glugga á þrjá vegu. Gengið út á verönd úr stofu.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum, gengið út á verönd úr hjónaherbergi.

Rúmgott sjónvarpshol.

Tvö barnaherbergi sem búið er að sameina í eitt stórt herbergi, auðvelt að breyta til baka.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góðri innréttingu og sturtu. Einnig gengið út á verönd úr baðherbergi.

Þvottahús með innréttingu.

Stór og rúmgóður tvöfaldur bílskúr.

- Verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti.

- Góðar timbur útigeymslur fyrir garðhúsgögn og fleira.

- Steypt útigeymsla eða vinnuherbergi.

- Upphitað steypt bílaplan fyrir framan húsið og meðfram húsinu.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.

2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.

4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.