Þrándarstaðir 4

276 Mosfellsbær

Ásett verð: 33.900.000 kr.

Þrándarstaðir 4
Tegund
Sumarhús
Stærð
49,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1996
Fermetraverð
682.093 kr.

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna sjarmerandi 3ja herbergja sumarhús með góðum palli og heitum potti á fallegum stað í Brynjudal, Hvalfirði í Kjósahreppi. Í sumar var skipt um gólfefni og eldhús endurnýjað og baðherbergi að hluta og húsið málað að innan. Nýr rafmagnspottur á pallinum. Innbú fylgir í kaupunum.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.

Eignin er skráð 49,7 fm.

Nánari lýsing:

Forstofa með parket á gólfi.

Alrými er rúmgott með parket á gólfi. Útgengt á pallinn og fallegt útsýni.

Eldhús í alrými með nýrri innréttingu og uppþvottavél.

2 góð svefnherbergi með parket á gólfi og tvíbreiðum rúmum og annað þeirra með skáp.

Baðherbergi var endurnýjað að hluta í sumar og settar nýjar flísar og upphengt salernir. Góður sturtuklefi og innrétting.

Góðar útigeymslur og bílastæði.

Húsið stendur á fallegri og friðsælli lóð í Brynjudal því ekki er mjög þéttbýlt í dalnum. Tré veita gott skjól á lóðinni og einstaklega fallegt útsýni út Hvalfjörðinn.

Nánari upplýsingar um eignina veita: Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 779-5463 / anton@trausti.is og Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 / alli@trausti.is