Miðfell 6
846 Flúðir
Ásett verð: 98.900.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 696,4 m²
- Herbergi
- 7
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1979
- Fermetraverð
- 142.016 kr.
Lýsing
Rúmgott og bjart einbýlishús á einni hæð auk tvöfalds innangengs bílskúrs einstaklega vel staðsett á skjólsælum stað í Miðfellshverfinu í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum. Á jörðinni er einnig stálgrindarhús á steyptum grunni sem býður upp á margvíslega notkunar möguleika. Jörðin er mjög gróin og er skráður 1 hektari og er eignarlóð.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 696,4 fm. og þar af er íbúðarhúsið 167,8 fm., tvöfaldur bílskúr 48,6fm. og stálgrindarhús 480 fm.
Nánari lýsing:
Húsið sem er skráð lögbýli er timburhús á einni hæð og er byggt árið 1979. Húsið er bárujárnsklætt á tveimur hliðum og var skipt um glugga á þeim hliðum. Auðvelt er að breyta skipulagi hússins að innan þar sem léttir veggir eru í húsinu.
Í dag eru í húsinu fimm góð svefnherbergi með skápum í hluta þeirra.
Stofa og borðstofa rúmgóðar og bjartar með fallegu útsýni, parket á gólfi. Útgengt er út á suður verönd í bakgarði hússins úr stofunni, steyptur heitur pottur við veröndina.
Rúmgott eldhús með góðum borðkrók og flísum á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, gluggi og flísalagt gólf.
Þvottaherbergi rúmgott með geymslu innaf og gestasalerni .
Tvöfaldur bílskúr 48,6 fm. með tvennum bílskúrshurðum og með malargólfi. Fyrir framan bílskúrinn er rúmgott bílaplan með möl.
Á lóðinni er stálgrindarhús skráð 480 fm. á steyptum grunni. Skv. skráningu er húsið alifuglahús en hefur ekki verið í notkun síðustu ár nema sem geymsla.
Hitaveituréttindi er eign húeiganda og því lítill kyndikostnaður. Kalt vatn tekið úr fjallinu fyrir húsin á svæðinu. Borað var fyrir vatni sem fyllir 20000ltr. miðlunartank sem miðlar vatninu til húsanna.
Einstök náttúruperla á skjólgóðum stað í Hrunamannahreppi með glæsilegu útsýni til suðurs.
Snjómokstur og sorphirða á svæðinu er þannig að aðgengi er gott allan ársins hring.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is