Heiðarsel 25

109 Reykjavík

Ásett verð: 123.500.000 kr.

Heiðarsel 25
Tegund
Raðhús
Stærð
196,8 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Fermetraverð
627.541 kr.

Lýsing

Kjöreign fasteignasala kynnir Heiðarsel 25, endraðhús á tveimur hæðum með bílskúr. Gott og vel skipulagt fjölskyduhús með 4 svefnherbergjum ( auðvelt að bæta við fimmta) á besta stað í Seljahverfi. Lýsing: á neðri hæðinni er forstofa, forstofuherbergi, gestasalerni, sjónvarpshol, svefnherbergi, þvottahús og geymsla. Innbyggður bílskúr. Á efri hæðinni er eldhús, búr með innréttingu, stofa, svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing,

Neðri hæðin. Flísalögð forstofa með forstofuskáp. Svefnherbergi með skáp. Gestasnyrting með flísum á gólfi. Flísalagður gangur með útihurð út á baklóðina. Rúmgott þvottahús með glugga, innrétting. Stórt og rúmgott svefnherbergi.

Nánari lýsing.

Efri hæðin. Rúmgóð stofa með góðri lofthæð. Hurð er úr stofunni út á góðar sólríkar suðursvalir. Rúmgóð og björt stofa með arni og parketti á gólfi og náttúruflísar í arinstofunni. Opið er inn í eldhús sem er með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu og eyju sem skilur að eldhús og borðstofu.. Innaf eldhúsinu er gott búr með innréttingu . Rúmgott barnaherbergi með skáp. Rúmgott og bjart hjónaherbergi með fataskápum. Skápar eru nýlegir. Nýlegar hvítar innihurðir eru á hæðinni. Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Flísar í hólf og gólf, "walk-in sturta" og baðinnrétting, upphengt wc og handklæðaofn.

Bílskúr . Innbyggður epoxylagður bílskúr með nýlegri bílskúrshurð og opnara.Heitt og kalt vatn. Hliðarhurð er inn í bílskúrinn. Lúga er í bílskúrsgólfinu niður í lagnakjallara sem er undir öllu húsinu.

Lóðin. Lóðin er öll afgirt. Bílastæði fyrir framan húsið. Timburpallar á allri lóðinni.

Endurbætur á húsi:

2014 Epoxi gólf á bílskúr og þvottahús

2015 Eldhús endurnýjað.

2015 Endurnýjuð rafmagnstafla á efri hæð. Skipt var um alla tengla í húsinu.

2015 endurnýjar klóak frá húsi og út af lóðinni ( í brunn )

2017 Baðherbergi endurnýjað, skipt um lagnir niður í kjallara fyrir baðið.

2017 Fataskápar og loft í herbergjunum á efri hæð og innihurðar á efri hæð.

2018 Ný bílskúrshurð

2019 Pallurinn að framan endurnýjaður.

2020 Nýtt járn á þakið, hitaþráður í rennur og niðurföll

2022 Svalagólf múrað og epoxi málað

2024 Dren bakvið hús, nýtt inntak á kalda vatninu

2025 Pallur og skjólveggur bakvið hús

2026 Skipt um ofna í herbergjum á efri hæð.

2026 Skipt um gler í eldhúsglugga.

Hús á frábærum stað í rólegu fjölskylduvænu hverfi. Fyrir neðan húsið er gróið opið svæði með tjörn. Húsið hefur fengið gott viðhald. Stutt í skóla, leikskóla, útvist og þjónustu.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.

Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is

Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is