Grettisgata 53b

101 Reykjavík

Ásett verð: 284.000.000 kr.

Grettisgata 53b
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
245,500002193451 m²
Herbergi
12
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
6
Byggingarár
1921
Fermetraverð
1.156.823 kr.

Lýsing

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Grettisgata 53B - 6 íbúðir í bakhúsi

Um er að ræða heila húseign með sex 2ja herbergja íbúðum , samtals 245,8 m², staðsett á rólegum stað á baklóð við Grettisgötu – í hjarta miðborgar Reykjavíkur.

Einstakt tækifæri til að eignast rekstrareign í 101 Reykjavík með staðfestum rekstri og leyfum.

Rekstur & tækifæri

- Rekin sem gistiheimili / íbúðarhótel

- Gistileyfi í flokki II

- Rekstur á kennitölu getur fylgt

- Allt innbú og húsbúnaður fylgir

- Tilbúið til áframhaldandi reksturs án frekari fjárfestingar

Eignin

- 6 fullbúnar 2ja herbergja íbúðir

- Skipulag: hol, eldhús, stofa, svefnherbergi og baðherbergi

- Svalir á hluta íbúða

- Sameiginlegt þvottahús

- Geymslur í sér húsi á lóð

Endurbætur & ástand

- Heildarendurnýjun árið 2010, m.a.:

* Þak, þakrennur og niðurföll

* Klóak- og neysluvatnslagnir

* Ofnar og hitakerfi

* Raflagnir og töflur

* Gluggar og gler

* Húsið málað og endurbyggt að utan og innan

- 2025:

* Allt málað að innan

* Húsgögn endurnýjuð

* 1 og 2. hæð meðhöndlaðar með Prima Clean (auðvelt í þrifum, sambærilegt við sjúkrahússtaðal)

Staðsetning

Róleg baklóð við Grettisgötu í göngufæri við alla helstu þjónustu, veitingastaði og afþreyingu miðborgarinnar. Hitalagnir undir gangstétt upp að húsi

Þróunarmöguleikar

Eignin er á einu fastanúmeri, en mögulegt að skipta í sér fastanúmer fyrir hverja íbúð (eins og áður var).

Skoðaðu eignina í 3D (6 íbúðir – fullbúin rekstrareign)

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu