Hólavegur 10

580 Siglufjörður

Hólavegur 10
Tegund
Hæð
Stærð
104,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1934

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hólavegur 10, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0421 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hólavegur 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0421, birt stærð 104.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða efri hæð í einbýlishúsi á frábærum stað með miklu útsýni. Eignin samanstendur forstofu, eldhúsi, búri, stofu, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi.

Eignin er að mestu leyti í upprunalegu ástandi. Gluggar og hurðar þarfnast lagfæringar. Steypa utan á húsinu þarfnast lagfæringa sem og þak eignarinnar. Ekki er vitað um ástand frárennslis og raflagna. Eignin stendur á fallegum stað með miklu útsýni og ber með sér mikla möguleika.

Forstofa: er rúmgóð með dúk á gólfi og fataskáp.

Eldhús: er upprunalegt með ágætri innréttingu og dúk á gólfi.

Búr: er kallt rými inn af eldhúsi með hilluplássi og steyptu gólfi.

Stofa: er mjög rúmgóð með góðu útsýni og teppi á gólfi.

Svefnherbergi: eru tvö misstór. Hjónaherbergi er með útgang út á svalir, fataskáp og dúk á gólfi. Barnaherbergi er með teppi á gólfi.

Baðherbergi: er með upprunalegum gólffjölum á gólfi, frístandandi baðkari, gólftengdu klósetti og vaski.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð