Byggðavegur 90 - 101

600 Akureyri

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Byggðavegur 90 - 101
Stærð
129,9 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1966
Fermetraverð
615.089 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Byggðavegur 90 - 101

Glæsileg, mikið uppgerð og vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á 1. hæð í þríbýli á vinsælum stað á neðri Brekku. Eignin er samtals 129,9 fm. á einni hæð og eru tveir inngangar, annar að framan og hinn á norðurhlið hússins inn í þvottahús.

**Þak endurnýjað**

**Gler og listar endurnýjaðir**

**Innréttingar endurnýjaðar**

**Baðherbergi endurnýjað**

**Gólfefni og innihurðar endurnýjaðar**

Íbúðin skiptist í forstofu, borðstofu og stofu í opnu rými, eldhús, þvottahús, geymslu, baðherbergi, gangur og þrjú svefnherbergi.

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Borðstofa og stofa í opnu rými með parket á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á svalir til suðurs.

Eldhús með parket á gólfi og þar er borðkrókur. Falleg dökk innrétting með ljósri granít borðplötu, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Tveir ofnar í vinnuhæð í innréttingu og spanhelluborð. Úr eldhúsi er farið inn í þvottahús og þaðan í geymsluna.

Þvottahúsið er innaf eldhúsinu og er þar einnig sér inngangur norðan við húsið. Innaf þvottahúsi er góð geymsla með glugga. Handklæðaofn og góð innrétting í þvottahúsi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu og skolvaskur. Granítborðplata er við vask. Auk þess er góður opinn fataskápur með hengi, hillum og skúffum.

Baðherbergi með glugga og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum. Sturta flísalögð með glerskilrúmi. Góð innrétting við vask með granítborðplötu og efri speglaskápar.

Svefnherbergin eru þrjú öll með parket á gólfi, rúmgóð og með fataskápum. Áður voru svefnherbergin fjögur en búið er að opna á milli og gera eitt stórt. Möguleiki að breyta til baka.

Annað:

-Þak endurnýjað í sumar 2026. Skipt um einangrun, járn, strompur fjarlægður og settar nýjar þakrennur.

-Íbúðin var gerð upp haustið 2016 að sögn fyrri eiganda var ma. eftirfarandi endurnýjað

-Rafmagn endurnýjað að mestu

-Allt gler og listar endurnýjað, einnig var skipt um opnanleg fög

-Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar

-Ofnar endurnýjaðir að hluta

-Gólfefni, innihurðar, innréttingar og tæki endurnýjað

-Búið er að gefa leyfi fyrir skúr á lóð en lóð er að öðru leiti sameiginleg

-Bílastæði fjær inngangi fylgir íbúðinni

- Grunnmynd hefur verið breytt í samræmi við núverandi skipulag; Opnað hefur verið á milli herbergja þar sem íbúðin var áður með fjórum svefnherbergjum en eru nú þrjú, opið inn í eldhús hefur verið stækkað og einnig opið úr forstofu inn í íbúð og nú er einungis gengið inn í þvottahús úr eldhúsi. Opið var einnig stækkað úr borðstofunni inná herbergis gang.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

halla@byggd.is

greta@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S: 464 9955