Breiðvangur 26

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 76.500.000 kr.

Breiðvangur 26
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
134,1 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Fermetraverð
570.470 kr.

Lýsing

Bókið skoðun - Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða 6 herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli við Breiðvang 26 í norðurbæ Hafnarfjarðar. Róleg og fjölskylduvæn staðsetning í göngufæri við skóla, leikskóla og verslun.

Eignin er skráð 134,1 fm skv. HMS, þar af er 13,9 fm sérgeymsla. Auk þess eru geymslupláss í sameiginlegu rými hússins.

Nánari lýsing eignar:

Flísalögð forstofa með fataskáp.

Rúmgott eldhús með stórri eyju. Hvít eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Borðkrókur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Rúmgóð og björt stofa . Útgengt þaðan út á svalir sem snúa í suðurátt.

Hluta af stofu/sjónvarpsholi hefur verið breytt í fimmta svefnherbergið .

Svefnherbergisgangur.

Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Útgengt þaðan út á svalirnar.

Þrjú svefnherbergi . Öll með fataskáp.

Flísalagt baðherbergi með innréttingu með handlaug, upphengt salerni og sturta. Gluggi á baðherberginu.

Sérgeymsla í kjallara auk geymslurými í sameiginlegu rými.

Nýlegt parket á gólfi í stofu og svefnherbergjum.

Skv. upplýsingum frá seljanda hafa eftirfarandi viðgerðir staðið yfir síðastliðin 5 ár.

- Húsið múrviðgert og málað að utan

- Skipt um járn og pappa á þaki

- Skipt um glugga að hluta til innan íbúðar

Allar nánari upplýsingar gefur Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Teikning hefur verið unnin með hjálp gervigreindar

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.