Lofnarbrunnur 1

113 Reykjavík

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Lofnarbrunnur 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
65,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
914.504 kr.

Lýsing

Þórhallur Biering og Betri Stofan kynna : Sérlega fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð með suður-svölum, á fyrstu hæð. Lyftuhús á vinsælum stað í Úlfarársdalnum (byggt 2021).

Mjög gott útsýni til austurs og suðurs.

Komið er inn í rúmgóða forstofu með forstofuskáp.

Eldhúsið er með fallegri innréttingu, skápapláss er ágætt og vinnuaðstaða fín. Gott pláss er fyrir borðstofuborð á milli eldhúss og stofu.

Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja. Ágæt innrétting, upphengt salerni og sturta. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.

Stofan er góð og björt , með útgengi út á góðar suð-austur svalir.

Svefnherbergið er rúmgott með stórum fastaskaáp.

Gólfefni eru parket og flísar.

Í sameign er sér geymsla (12,4 fm).

Næg bílastæði og hleðslustöðvar.

Gott húsfélag og engar fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum þess.

Falleg eign í nýlegu húsi á vinsælum og góðum stað..

Stutt í sklóla og íþróttir.

Allar nánari upplýsingar gefur:

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is