Sæviðarsund 13

104 Reykjavík

Ásett verð: 109.900.000 kr.

Sæviðarsund 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
167 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1965
Fermetraverð
658.084 kr.

Lýsing

Sæviðarsund 13 - Reykjavík

- Bílskúr og aukaíbúð -

OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 16.NÓV FRÁ KL 17:00-17:30

Eignin mikið endurnýjuð

Nýlegt eldhús og tæki

Nýleg gólfefni og innihurðir

Þrjú herbergi

Bílskúr

Aukaíbúð með tveimur svefnherbergjum

Tvennar svalir til suðurs og austurs

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð í litlu fjölbýli við Sæviðarsund 13, Reykjavík.

Íbúðin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og fylgir henni bílskúr og aukaíbúð sem er í útleigu.

Eignin er skráð samtals 169 fm, þarf af er bílskúr 28,9 fm og aukaibúð sem er 51,6 fm.

Komið er inn í forstofu / hol með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Eldhús er opið og samliggjandi með stofu, falleg innrétting frá Kvik, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, vínkælir, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur, microsement á veggjum, harðparket á gólfi.

Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum, harðparketi á gólfi.

Herbergi I er með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi, útgengt úr herbergi á svalir.

Herbergi II er með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Herbergi III þar sem útgengt er út á svalir. Herbergið er nýtt sem vinnuherbergi í dag en var áður hluti af stofu og hægt að breyta tilbaka með auðveldum hætti.

Baðherbergi með góðri innréttingu, salerni og baðkar með sturtu. Flísar eru á gólfi og í kringum baðkar.

Sérgeymsla staðsett í sameign á jarðhæð (4 fm).

Sameiginlegt þvottahús einnig í sameign á jarðhæð (hver með sína vél).

Bílskúr sem er rúmgóður - heitt og kalt vatn. (Bílskúrinn var áður nýttur sem íbúð og var í útleigu en búið er hreinsa út úr rýminu þar sem að það var orðið lúið).

Aukaíbúð er staðsett á jarðhæð sem skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi og tvö rúmgóð herbergi. Er í útleigu í dag.

Skv.seljanda:

Eldhús og tæki endurnýjað 2023 - innrétting frá Kvik, nýjir tenglar og sér rafmagnstafla fyrir eldhúsið.

Nýr forstofuskápur frá Axis 2024

Nýtt harðparket og innihurðir frá Birgisson 2024

Miðstöðvarofnar yfirfarnir og skipt um hitastilla 2025

Nýr þrýstijafnari í hitagrind 2025

Húsið múrviðgert og málað að utan árið 2025

Þak málað 2025

Þetta er falleg og björt íbúð sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti - frábær staðsetning þar sem að skólar, leikskólar, verslanir og helsta þjónusta er í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.