Austurhöfn Geirsgata 17 (208)
101 Reykjavík
Ásett verð: 74.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 49,4 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2019
- Fermetraverð
- 1.516.194 kr.
Lýsing
Háborg fasteignasala og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu, glæsiega íbúð við Geirsgötu 17 101 Reykjavík. Á 2.hæð í þessu vinsæla húsi sem eitt af kennileitum borgarinnar og vakið athygli fyrir glæsilega hönnun og vandað efnisval.
Nánar um íbúðina. Komið inn í forstofu með góðum fataskápum. Eldhús og stofa er opið rými með gólfsíðum gluggum. Alrýmið er bjart og rúmgott og með útgengi út á suður svalir með svalarlokun og viðarklæðningu. Eldhúsið er sérsmíðað efnisval er amerísk hnota og vönduð tæki. Eldhúsið er L laga hannað af Gili Creations, Baðherbergið er glæsilegt og vandað til efnisval, fallegar ljósar flísar, góð snyrtiaðstaða og innfeld blöndunartækji. Á baði er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergið er með innfelldri lýsingu, einnig með gólfsíðum gluggum og góðum fataskáum. Eigninni fylgir geymsla í kjallara.Um er að ræða sérlega glæsilega tveggja herbergja íbúð í miðbæ Reykjavíkur við Austurhöfnina. Aðgengi að bílakjallara. LAUS STRAX
Sérstaða þessar íbúðar er: Aukin lofthæð í íbúðum
Gólfhiti og hágæða loftskiptikerfi
Sérhannaðar ítalskar innréttingar frá Gili creations
Vönduð eldhústækjalína Miele
Kvartz borðplata
Hússtjórnarkerfi frá Lutron og Savant
Snjallheimiliskerfi frá Nordic Smart Spaces
Innfelld og óbein lýsing einkennir lýsingarhönnun
Sérhannaður garður til einkanota fyrir íbúa
Þjónusta í boði frá Reykjavík Edition
Svalalokun
Við hönnun íbúðarinnar var lögð áherlsa á þægindi og notagildi ásamt því að láta hvert rými njóta sín í stíl við heildarhönnun íbúðarinnar.
Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag. Mánaðargjöld eru kr. 28.515-. Húseigendatrygging innifalin í húsgjöldum.Á aðafundi 2025 var stjórn falið að athuga með útskipti á ljosum í bílageymslu og lagfæringar á lyftu. Einnig er stjórn að skoða búnað til að laga slæmt símsamband á jarðhæð. Hússjóður stendur vel.
Bílakjallari: undir húsinu er bílakjallari sem hægt er að fá aðgang að, ýmist með mánaðar áskrift eða skammtíma leigu.
Hverfið: Geirsgata 17 er glæsileg bygging sem stendur við Austurhöfn á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Skjólgóður garður til einkanota fyrir íbúa er í miðju byggingakjarnans. Í næsta nágrenni er fjölbreytt flóra matsölustaða. Á neðri hæð Austurhafnar er Hafnartorg mathöll og Gallery. Einnig er örstutt að ganga yfir í Edition hótelið sem skartar glæsilegum veitingastöðum og börum. Tónlistar og menningarhúsið Harpa er í næsta nágrenni ásamt verslunum og menningu í miðborg Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.