Iðunnarbrunnur 12

113 Reykjavík

Ásett verð: 87.900.000 kr.

Iðunnarbrunnur 12
Tegund
Hæð
Stærð
106,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
828.464 kr.

Lýsing

Valhöll fasteignasala og Gylfi Þór lögg. fasteignasali kynnir fallega 106,1 fermetra 4ra herbergja efri hæð ( tvíbýli ) við Iðunnarbrunn 12 í Reykjavík.

Falleg og björt með gólfsíðum gluggum í flestum rýmum og stórum gluggum í stofurými. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. Auðvelt að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað borðstofu og færa borðstofu inn í stofurými. Útgengi úr alrými á rúmgóðar svalir með útsýni til fjalla. .

Bílastæði við hús og stór sameiginlegur garður.

smelltu hér til að sjá myndband af eigninni

Fallegt harðparket er á aðalrýmum og innfelld lýsing í loftum víða. Glerhandrið við stiga. Dökk eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi. Fallegt baðherbergi með glugga og rúmgóðri innréttingu utan um þvottavél og þurrkara.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.

Stigagangur: Snyrtilegur með glerhandriði og stórum gluggum.

Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til suðvesturs og norðvesturs. Stofa er opin við eldhús.

Borðstofa: Rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðvesturs og norðvesturs. Möguleiki væri að loka og bæta við þriðja svefnherbergi. Útgengi á svalir.

Svalir: Eru rúmgóðar með hellulögðu svalagólfi. Útsýni til fjalla.

Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri dökkri eldhúsinnrétting með miklu borðplássi. Eldhús er opið við stofu og borðstofu með innfelldum ljósum í loftum. Innbyggður kæliskápur með frysti, tveir ofnar (annar combi/örbylgjuofn) og innbyggð uppþvottavél. Gott borðpláss við eyju og stæði fyrir barstóla.

Hjónaherbergi: Er stórt, með harðparketi á gólfi, gólfsíðum gluggum til suðvesturs og suðausturs og góðu skápaplássi.

Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðausturs.

Baðherbergi: Er flísalagt í gólf og veggi. Versace flísar á gólfum. Flísalögð sturta með glerhurð, upphengt salerni og handklæðaofn. Gott skápapláss með upphækkun undir þvottavél og þurrkara.

Stutt er í grunnskóla , íþróttasvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og alla útvist í kringum Úlfarsfell.

Möguleiki að vera með gæludýr.

Nánari upplýsingar:

Gylfi Þór lögg. fasteignasali / gylfi@valholl.is / 7704040