Kringlumýrarvegur 19

805 Selfoss

Ásett verð: 34.800.000 kr.

Kringlumýrarvegur 19
Tegund
Sumarhús
Stærð
43,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1984
Fermetraverð
800.000 kr.

Lýsing

Kringlumýrarvegur 19, Grímsnes- og Grafningshreppi – Í einkasölu

Um er að ræða 43,5 fm sumarhús byggt árið 1984 ásamt um 11 fm geymslu á 6.150 fm eignarlóð. Húsið stendur á símastaurum og er tengt hitaveitu. Að innan skiptist eignin í tvö svefnherbergi, baðherbergi og opið eldhús- og stofurými. Eitt svefnherbergi hússins er ekki inni á samþykktum teikningum og er húsið því stærra en skráð fermetratala gefur til kynna.

Á lóðinni er ca. 11 fm útigeymsla og einnig plastgróðurhús ásamt tveimur köldum útigeymslum í bíslagi við húsið.

Nánari lýsing:

Forstofa: Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi: Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: Harðparket á gólfi, innrétting með vask, sturta, salerni, handklæðaofn ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Stofa og eldhús: Opið og bjart rými með harðparketi á gólfi. Hvít eldhúsinnrétting. Útgengt er á verönd.

Lóðin er 6.150 fm eignarlóð á rólegum stað í sumarhúsabyggð þar sem stutt er í fjölbreytta afþreyingu, golfvelli, veiðisvæði og aðra þjónustu.