Miklabraut 44

105 Reykjavík

Ásett verð: 99.500.000 kr.

Miklabraut 44
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
148,8 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1940
Fermetraverð
668.683 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir til sölu 148 fermetra hæð og ris við Miklubraut í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi/ eru á teikningu eitt herbergi. Í risi er alrými, baðherbergi og eldhúskrókur með mikla möguleika.

Falleg eign með verslun og þjónustu í göngufæri.

Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagt anddyri. Úr anddyri er gengið teppalagðan stiga uppá 2. hæð. Komið er inn á parketlagt hol með skrifstofuaðstöðu. Stofa og borðstofa eru parketlagðar með harðparketi. Falleg hurð er á milli stofu og borðstofu. Eldhús er parketlagt með hvítlakkaðri innréttingu og gaseldavél með stáláferð. Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi og fataskápum. Barnaherbergin eru tvö, bæði með harðparketi/voru áður eitt herbergi. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir með innréttingu og sturtuklefa. Í risi er parketlagt alrými með loftgluggum. Eldhús aðstaða er í risi.

Baðherbergi er í risi með flísum á gólfi, innréttingu og baðkari. Falleg eign með mikla möguleika á nýtingu. Sameiginlegt þvottahús er í sameign í kjallar og sérgeymslur. Eignin er skráð eftirfarandi íbúð á 2.hæð 114,4 fm merkt 0201, stigahús á 1. hæð 4,3 fm merkt 0102, 4,3 sérgeymsla í kjallara merkt 0003, 0,9 fm sérgeymslu undir úti tröppum merkt 0006 og 24.9 fm geymsla í risi merkt 0301, samtals 148,8.

Yfirlit yfir framkvæmdir frá eiganda.

Farið yfir þak og málað 2025.

Skólp og dren skoðað fyrir 8 árum.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði