Stekkjargata 31

410 Hnífsdalur

Stekkjargata 31
Tegund
Einbýlishús
Stærð
107,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1955

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - Til sölu Stekkjargata 31 Hnífsdal - Einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara - Tilboð óskast - Húsið er nú nær fokhelt, núverandi eigandi hefur áætlað að skipta eigninni í tvö útleigurými.

Eignin samanstendur af forstofu, herbergi, stofu og eldhúsi í opnu rými og baðherbergi.

Rishæðin er eitt rými Stór gluggi sem snýr út á Ísafjarðardjúp, gott útsýni þar. Kjallari undir hluta hússins.

Að innanverðu er eignin svo til fokheld

Nýlegar framkvæmdir eigenda:

- Steypa stórt plan og tröppur upp að húsi - Steypa sökkul undir horn sem var skemmt.- Múra grunninn á húsinu.

- Nýtt gler í flestu. Annað gler nýlegt. - 2x Nýjar svalahurðar, 2x hurðar af gangi inn í íbúðir, Ný útidyrahurð.

- Massív grind kringum lóð fyrir grindverk. (Steypt niður) - Stífa gólf uppi og slétta gólf niðri (Rakavarðar plötur)

- Ný einangrun í þaki. - Skolprör fyrir baðherbergi tvö. - Skolprör í garðinum fyrir gestahús.

- Affallsrör fyrir þakrennur. - Bera mold í lóð. - Þak lektað og nýr rakavarnardúkur settur á. - Þakrennur, festingar og rör.

- Gólfhitalagnir í allri neðri hæð.

- Það þarf að útbúa brunn í kjallara eða þétta gólf. Kemur smá vatn upp um kjallaragólfið á háflóði. (Dæla fylgir með)

- Þarf að fara yfir klæðningu á húsi sem og frágang á þaki og undir þríhyrnda glugganum uppi. (Enginn leki, en þarf að gera betur)

- Nýleg rafmagnstafla - Húsið er mjög vel einangrað og heldur hita vel.

- Allar lagnir eru nútímavæddar (Ekkert upprunalegt) - Það er rafmagn í húsinu en það á eftir að leggja fyrir innstungum og ljósum.

- Er töluvert eldra en skráð ártal í Fasteignaskrá - Gert er ráð fyrir að skipta húsinu í tvær einingar. 2 herbergja íbúð og stúdíó íbúð.

Eigendur hafa keypt eftirfarandi hluti sem fylgja með í kaupum eignar:

- Ný salernisskál (Sú sem er í notkun er sprungin)

- 2 x Baðvaskar og innréttingar undir + speglar (Ikea)

- Nýr stór hitakútur sem á að anna heitavatnsþörf beggja íbúða ásamt gestahúsi verði það sett upp (Ekki búið að tengja)

- Veggjapanell og þynnri loftapanell fyrir efri hæðina.

Skráður timburhjallur 18,5 m² að stærð hefur verið rifinn, húsið sjálft er skráð 89,3 m².

Húsið er klætt með bárujárni frá ca 2014 en sér járni á eftir fokskemmdir.