Straumhella 11C bil103

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 38.900.000 kr.

Straumhella 11C bil103
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
76,4 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
509.162 kr.

Lýsing

Til sölu nýtt og vandað 76,4 m² iðnaðarbil í steyptu húsi við Straumhellu 11 í Hafnarfirði. Tilbúið til afhendingar í nóvember 2026 eða við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar um skil og hvaða einingar eru óseldar má finna á heimasíðu verkefnisins: Smelltu hér

- Húsið er steypueiningahús frá Einingaverksmiðjunni. Burðarvirki sökkla, útveggja og innveggja er úr steypueiningum. Útveggir eru samlokueiningar með einangrun í miðju. Burðarvirki þaks er úr

steyptum holplötum og ofan á þær kemur einangrun og tvöfalt lag af tjörupappa.

-Hverri einingu fylgir sérafnotaréttur að svæði fyrir framan hana sem nemur breidd einingarinnar.

Lóðin skilast fullfrágengin og malbikuð samkvæmt teikningu, ásamt girðingu og aðgangsstýrðu öryggishliði.

- Bilið er 76,4 m² með vegghæð frá 6,1 m upp í 6,78 m. Möguleiki er á að gera mjög góð milliloft innan rýmisins.

- Afhending er áætluð í nóvember 2026.

Í hverju bili eru tvær inngönguhurðir og ein innkeyrsluhurð. Innkeyrsluhurðir eru 3 m × 3 m að stærð.

Við hliðina á þessu bili er annað jafnstórt bil til sölu.

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars:

Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is

​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.