HAFNARBRAUT 4
740 Neskaupstaður
Ásett verð: 20.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 80,8 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1924
- Fermetraverð
- 247.525 kr.
Lýsing
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HAFNARBRAUT 4, „ BRENNA", 740 Neskaupstaður.
Þriggja herbergja íbúð með sér inngangi á hæð í þríbýlishúsi. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er timburhús, byggt árið 1924. Eignin er íbúð, samtals 80,8 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö herbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri , flísar á gólfi, snagar á vegg. Rafmagnstafla.
Frá anddyri er gengið inn í herbergi I, stofu, borðstofu og baðherbergi.
Baðherbergi , sturtuklefi standandi salerni og handlaug. Pláss er fyrir litla þvottavél, en það er ekki tengi fyrir hana. Flísar á gólfi.
Herbergi I , plastparket á gólfi.
Stofa og borðstofa saman í einu rými, parket á gólfi.
Eldhús , lítil innrétting með efri og neðri skápum, tvær hellur í borði og vaskur. ATH. enginn bakaraofn er til staðar í eldhúsi.
Herbergi II er inn af eldhúsi. Parket á gólfi.
Hafnarbraut 4 er timburhús á þremur hæðum. Sér inngangur er inn í alla eignarhluta hússins. Steyptar tröppur er fyrir framan inngang hússins.
Lóð er malbikuð og er hægt að keyra báðu megin við húsið.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 216-9112. Hafnarbraut 4.
Stærð: 01.0201 Íbúð 80,8 m².
Brunabótamat: 30.000.000 kr.
Fasteignamat: 29.450.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1924.
Byggingarefni: Timbur.