Núpahraun 18

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Núpahraun 18
Tegund
Raðhús
Stærð
138,99999961853 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
646.763 kr.

Lýsing

Um er að ræða virkilega fallegt 139 fm endaraðhús á einni hæð með bílskúr á góðum stað í Þorlákshöfn. Eignin er fullbúin að utan en byggingarár eignarinnar er skráð 2021. Í eigninni er mikil lofthæð, dúkur í lofti, rúmgóð herbergi, stórt og fallegt eldhús í björtu og opnu rými. Gólfhiti er í íbúðinni með stýringu. Einnig er upphituð steypt stétt í garðinum ásamt steyptu bílaplani með hitalögn. Heitur pottur í garðinum ásamt stórum timburpalli.

Birt stærð íbúðarrýmis er 109,6 og bílskúrinn er 29,4 fm eða samtals 139 fm.

SELJANDI SKOÐAR SKIPTI Á MINNI FASTEIGN.

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Skitping eignar: Anddyri, gangur, eldhús, stofa, sjónvarpsherbergi, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing:

Anddyri: Rúmgott anddyri með góðum fataskáp, flísar á gólfi. Innangengt er í bílskúrinn frá anddyri.

Hol: Rúmgott hol.

Svefnherbergi: Í dag eru tvö rúmgóð svefnherbergi en gert er ráð fyrir þriðja svefnherberginu en það er notað sem sjónvarpsherbergi í dag. Fataskápur er í hjónaherbergi.

Flísalagt baðerbergi sem er mjög rúmgott með rúmgóðri sturtu með glerskilrúmi, fallegri innréttingu og upphengdu salerni. Í sama rými er aðstaða fyrir þvottavélar og útgengt út í suðurgarð.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu með nægu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og góðum eldunartækjum. Opið er inn í stofu frá eldhúsi.

Stofan og borðstofan er stór og björt með hárri loftæð og með innbyggðri led lýsingu og er dúkur í loftinu sem hjálpar mjög til með hljóðvist. Frá eldhúsi og stofu er stór rennihurð þar sem er útgengt út á verönd.

Bílskúr: góður 29,4 fm bílskúr með innkeyrsluhurð, rafmagnsopnarar, vatni, rafmagni. Búið er að útbúa gott milliloft sem nýtist mjög vel.

Góflefni: Parket á íbúðarrými fyrir utan þvottahús, baðherbergi og anddyri þar eru flísar.

Lóð : Bílaplan er steypt og með hitalögn. Garðurinn er með góðri skjólgirðingu allan hringinn sem sem myndar gott skjól og næði. Einnig er virkilega veglegur timburpallur með heitum potti. Stýring fyrir heita pottinn er í bílskúrnum og er hann tengdur með snjallkerfi.

HÉR ER UM AÐ RÆÐA VIRKILEGA FALLEGT OG VEL STAÐSETT FJÖLSKYLDUHÚS - STUTT ER Í GRUNN- OG LEIKSKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAHÚS, VERSLANIR, ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU OG NÁTTÚRUNA - EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.