Liljugata 9
270 Mosfellsbær
Ásett verð: 101.900.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 106,7 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2023
- Fermetraverð
- 955.014 kr.
Lýsing
** Opið hús fimmtudaginn 12. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og nýlegt 106,7 m2, raðhús á einni hæð við Liljugötu 9 í Mosfellsbæ. Um er að ræða fullbúið og vel skipulagt raðhús byggt 2023.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, geymslu, eldhús og stofu. Fallegar innréttingar frá HTH, harðparket á gólfum. Gólfhiti er í öllu húsinu, innfelld lýsing í forstofu, stofu, eldhúsi og hjónaherbergi, Free@Home hússtjórnarkerfi og loftskiptakerfi frá Íshúsinu ehf.
Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu. Afgirt timburverönd í suðurátt. Undir timburverönd eru ídráttarlagnir fyrir heitan pott. Kaldur geymsluskúr er í bakgarði.
Frábær staðsetning, stutt frá Helgafellsskóla, leikskóla og næstu strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Eldhús er með fallegri innréttingu og færanlegri eyju. Í innréttingu er spanhelluborð, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. LED lýsing er undir efri skápum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar og skápar í efri hluta innréttingar. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðinnréttingu, handklæðaofn, vegghengdu salerni. Sturta er flísalögð og með sturtuskilrúmi og hurð úr hertu gleri. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á hellulagða verönd og út í bakgarð.
Svefnherberbergi nr. 2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofan er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út afgirta timburverönd.
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Geymsla er inn af forstofu með flísum á gólfi.
Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf. Húsið staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu frá Áltak ehf.
Verð kr. 101.900.000,-