Eskiás 10 - íbúð 210
210 Garðabær
Ásett verð: 69.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 64,8 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Fermetraverð
- 1.078.704 kr.
Lýsing
Bókið skoðun á þessum íbúðum í síma 839-1600, sýni daglega.
Virkilega fallegar og vel skipulagðar íbúðir að Eskiás 10 á góðum stað í Garðabæ. Allar íbúðir eru með sérinngangi. Næg bílastæði á lóð. Um er að ræða 27 íbúða hús þar sem íbúðir eru frá 64,0 fm - 134,4 fm. Íbúð 210 er 64,8 fm með 2 svefnherbergjum, baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt svölum og fallegu útsýni. Afhending er við kaupsamning.
Hafðu samband og bókaðu skoðun: Gunnar Bergmann Jónsson Löggiltur fasteignasali - sími 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Frágangur:
- Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar fyrir utan megingólfefni en flísar á baðherbergjum/þvottahúsi.
- Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
- Eldhústæki verða; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum.
- Flest baðherbergi í minni íbúðum eru flísalög með sturtuklefa, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi/þvottahús í stærri íbúðum eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
- Öll hreinlætistæki eru af vandaðri gerð frá Grohe.
- Ljósleiðarar frá OR og Mílu eru í hverri íbúð.
- Rafbílahleðslukerfi verður fyrir hendi.