Goðaborgir 8

112 Reykjavík

Ásett verð: 59.700.000 kr.

Goðaborgir 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
67 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1996
Fermetraverð
891.045 kr.

Lýsing

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s: 662-6163 ) kynnir fallega og mikið endurnýjaða 67fm 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á 1.hæð í góðu fjölbýli á vinsælum stað í Grafarvoginum. Birt stærð skv. HMS er 67fm, þar af geymsla 2,4fm. Eignin skiptist í anddyri, hol, svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu.

** Sérinngangur

** Sér aflokaður pallur

** Góð staðsetning

** Frábær fyrstu kaup

Nánari lýsing:

Anddyri með fatahengi er flísalagt, geymsluskápur er innst í anddyri.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi er parketlagt, útgengt úr stofu út á afgirta hellulagða verönd til suð-austurs.

Eldhús með L-laga innréttingu, AEG helluborð og ofn, vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, parket á gólfi.

Svefnherbergi parketlagt með fjórföldum fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtaðstöðu, upphengt salerni, nett innrétting, speglaskápur, þvottaaðstaða, handklæðaofn og gluggi.

Sérgeymsla er í sameign.

Bílastæði eru merkt hverri íbúð, eitt bílastæði merkt 0102 fylgir íbúð.

Húsið er steypt, á fjórum hæðum með bárujárnsklæddu þaki. Ellefu íbúðir eru í húsinu. Lóðin er sameiginleg og fullfrágengin. Hellulögð stétt liggur frá bílastæði að inngangi íbúðar. Íbúðinni fylgir sérafnotareitur til suð-austurs sem er afgirtur. Hússjóður er 17.405kr pr mánuð. Hússjóður stendur vel og engar stórar framkvæmdir fyrirhugaðar samkv. yfirlýsingu húsfélags.

Goðaborgir 8, íbúð merkt 0102 er björt og rúmgóð eign á rólegum stað í Borgahverfi Grafarvogs. Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.