Lyngberg 2

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 54.000.000 kr.

Lyngberg 2
Tegund
Parhús
Stærð
81,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1975
Fermetraverð
661.765 kr.

Lýsing

Lyngberg 2 er 81,6 m² parhús á einstaklega góðum stað, með tveimur svefnherbergjum, stórum afmörkuðum garði og nýjum timburpalli til suðurs. Hér gefst gott tækifæri til að eignast sérbýli og móta heimilið að eigin smekk. Eignin verður afhent með endurnýjuðum gluggum og nýrri rennihurð úr stofu út á pall.

Nánari upplýsingar veita:

Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.is

Skipting eignar

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og þvottahús.

Endurbætur og afhending

Eigendur eru að endurnýja þá glugga sem ekki hafði áður verið skipt um og setja nýja rennihurð í stofuna. Hurðin opnast út á nýjan timburpall til suðurs með skjólgirðingu.

Íbúðin þarfnast endurbóta að innan og næsta skref hjá eigendum er að hefja þær. Væntanlegum kaupendum býðst að kaupa íbúðina í núverandi ástandi að innan. Eignin verður afhent með endurnýjuðum gluggum og nýrri rennihurð.

Útisvæði

Nýlega var hellulagt fyrir framan eignina og smíðaður timburpallur til suðurs. Garðurinn er stór, snyrtilegur og afmarkaður. Við eignina eru vel smíðuð ruslaskýli. Aðgengi að eigninni er gott og þar nýtur sín það næði sem fylgir sérbýli.

Nánari lýsing

komið er inn í anddyri með þvottahúsi inn af. Frá anddyri er gengið inn í rúmgott eldhús með hvítri innréttingu. Við eldhúsið er rúmgott hol sem tengir saman rými íbúðarinnar. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergið er flísalagt og þar er upphengt salerni og opin sturta með sturtuhengi.

Húsið er einstaklega vel staðsett í grónu, fjölskylduvænu hverfi. Á bak við húsið er fallegur, stór og vel búinn leikvöllur !