Sörlaskjól 22
107 Reykjavík
Ásett verð: 68.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 71 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1947
- Fermetraverð
- 970.423 kr.
Lýsing
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Notalega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í vel viðhöldnu þríbýlishúsi að Sörlaskjóli 22 í Vesturbænum. Eignin er björt með gluggum í allar áttir og hefur notið góðs viðhalds með nýrri eldhúsinnréttingu. Allar gluggar íbúðarinnar snúa út í rólegan og skjólgóðan garð. Stutt er í Ægisíðuna, leikvelli, skóla og aðra þjónustu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa er sameign en nýtist eins og hluti af íbúðinni og sérinngangur. Gott fatahengi og pláss fyrir skóhillur.
Eldhús: Flísalagt eldhús með tveimur gluggum sem gerir rýmið bjart og opið. Eldhúsið er með snyrtilegri nýlegri innréttingu og borðkrók.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með parketi, gluggum á tvo vegu og plássi fyrir fataskáp.
Herbergi II: Parketlagt herbergi með stórum glugga og pláss fyrir fataskáp.
Stofa: Einstaklega björt og falleg stofa með stórum gluggum á þrjá vegu. Parketlagt og með útskoti sem gefur möguleika á fjölbreytilegri nýtingu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með glugga, baðkari og nýlegum vaskskáp.
Á sömu hæð er sameiginlegt þvottahús, hitakompa og sérgeymsla undir stiga.
Garður: Húsið er umkringt gróðursælum og vel hirtum garði þar sem hægt er að njóta sólar frá morgni til kvölds. Hellulagt svæði og sameiginlegur pallur bjóða upp á útivistarsvæði sem nýtist vel fyrir fjölskyldur.
Staðsetning: Íbúðin er staðsett á einstaklega rólegum og barnvænum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt er í Ægisíðuna, Vesturbæjarlaugina, matvöruverslanir, bakarí og kaffihús. Leikvellir beggja vegna hússins eru í göngufæri.
Um er að ræða einstaka eign sem er þess virði að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali