Blikahólar 10

111 Reykjavík

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Blikahólar 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
155,1 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1973
Fermetraverð
515.152 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun.

Glæsileg og rúmgóð íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr, heildar stærð er 155,1fm þar af bílskúr 31,0fm. Íbúðin var öll endurinnréttuð 2024, íbúðin skiptist í eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum, stór og björt stofa, 3 svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi með þvottaaðstöðu. Allar innréttingar, fataskápar, hurðar, gólfefni og tæki eru ný í íbúðinni auk þess sem dregið hefur verið nýtt rafmagn í alla íbúðina og rofar endurnýjaðir. Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á húsinu en hússjóður stendur vel.

Einstaklega vel hönnuð og fallega innréttuð íbúð ásamt bílskúr.

Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Sækja söluyfirlit hér

Nánari lýsing:

Forstofuhol með fataskáp, harðparketi á gólfi.

Eldhús tengist stofu í opnu rými, í eldhúsi er ný hvít sprautulökkuð innrétting með miklu skápapláss og flísalagt milli skápa, eldunareyja með nýjum vönduðum tækjum, harðparket á gólfi.

Stofa er mjög rúmgóð og björt, stofan tengist eldhúsi í opnu rými, harðparket á gólfi og útgengi á stórar suður svalir.

Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi.

Barnaherbergi eru 2, annað herbergið er rúmbetra og með fataskáp, harðparket á gólfum.

Baðherbergi er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, stór flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi.

Bílskúr er 31,0 fm, heitt og kalt vatn, innst í skúrnum er vinnuborð.

Geymsla 7,1 fm er í sameign.

Húsið þarfnast orðið viðhalds að utan en staða hússjóðs er mjög góð, sjá nánar húsfélagsyfirlýsingu og aðalfundargerð.

Mjög rúmgóð og smekklega innréttuð íbúð þar sem stutt er í skóla, verslun og þjónustu í hverfinu.

​​​​ Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-

3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.