Kringlumýri 12 efri hæð

600 Akureyri

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Kringlumýri 12 efri hæð
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
92,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1958
Fermetraverð
700.864 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kringlumýri 12 - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í tvíbýli á Brekkunni - stærð 92,6 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla.

Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum skáp. Úr forstofu er gengið inn á hol.

Eldhús , brún plastlögð innrétting með ljósri bekkplötu og flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél.

Hol nýtist að hlutatil sem borðstofa í dag, þar er ljóst harðparket á gólfi og stór gluggi til austurs.

Stofa er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum gluggum til tveggja átta.

Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi og veggjum, grá innrétting og speglaskápur, upphengt wc, walk-in sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél inn á baðherberginu.

Svefnherbergin eru tvö , bæði með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum.

Gengið er inn í kjallaranum um sér inngang á austurhlið hússins. Þar er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla .

Geymslan í kjallaranum er skráð 4,8 m² að stærð, með lökkuðu gólfi, hillum og opnanlegum glugga.

Timbur verönd var reist á framlóðinni á árunum 2018-19 og tilheyrir hún efri hæðinni.

Á baklóðinni er nýlegur geymsluskúr og er hann í sameign með neðri hæðinni.

Annað

- Búið er að endurnýja raflagnir innan íbúðar að stærstum hluta og endurnýja rofa og tengla.

- Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.

- Gólfhiti var lagður í íbúðina árið 2019.

- Gler og gluggapóstar var endurnýjað á árunum 2016-2018.

- Nýleg útidyrahurð er inn í þvottahúsið og nýlegur gluggi í geymslunni.

- Frárennslislagnir úr eldhúsi hafa verið endurnýjaðar út í brunn.

- Þak var yfirfarið og endurbætt fyrir meira en 10 árum þá af fyrri eiganda.

- Húsið var málað að utan fyrir um 5-6 árum.

- Sameiginleg hitaveita.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.