Vaðstígur 3

805 Selfoss

Ásett verð: 35.000.000 kr.

Vaðstígur 3
Tegund
Einbýlishús
Stærð
40 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Byggingarár
2020
Fermetraverð
875.000 kr.

Lýsing

Elka Guðmundsdóttir lgf., s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna Vaðstíg 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi – snyrtilegt 40 m² hús á 9.300 m² eignarlóð með mjög fallegu útsýni.

Húsið var byggt árið 2020 og er skráð sem gestahús í fasteignaskrá. Lóðin er skráð sem íbúðarhúsalóð.

Við húsið er pallur og á lóðinni stendur einnig lítið útihús. Hitaveita er á svæðinu.

Vaðstígur 1 er einnig til sölu, en það er óbyggð lóð við hlið þessarar - smellið á linkinn fyrir hana hér.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:

Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými. Eldhúsið er með ljósgrárri innréttingu, helluborði og ofni ásamt örbylgjuofni. Við gluggana er borðkrókur og úr alrýminu er útgengt á pall framan við húsið.

Tvö svefnherbergi með gluggum á tvo vegu.

Baðherbergi er með sturtu, salerni, vaskinnréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél.

Við húsið er pallur og á lóðinni stendur einnig lítið útihús. Hitaveita er á svæðinu.

Ath að hægt er að kaupa Vaðstíg 1 sem er 9.300 m² lóð við hliðina.

Eignarlóðin er 9.300 m² og er skráð sem íbúðarhúsalóð í fasteignayfirliti . Húsið á lóðinni er 40 m² og skráð sem gestahús.

Samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 0,03, sem samsvarar 279 m². Skilmálarnir heimila auk aðalhúss eitt aukahús allt að 40 m² og eitt kalt skýli allt að 15 m².

Lóðin býður því upp á áhugaverða möguleika til frekari uppbyggingar.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is.