Karlsrauðatorg 9

620 Dalvík

Karlsrauðatorg 9
Tegund
Einbýlishús
Stærð
77,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1919

Lýsing

Eignaver 460-6060.

Karlsrauðatorg 9, Dalvík.

Lítið og fallegt einbýlishús, samtals 77,5 fm., sem skiptist í tvær hæðir og risloft.

Á neðri hæðinni, sem er aðeins niðurgrafin, er gengið inn í lítið þvottahús, þar innaf er baðherbergi. Gengið niður úr þvottahúsi, í stofu og úr stofu inn í eldhús.

Stigi liggur upp á aðra hæð úr stofu. Á annarri hæð er lítill gangur, tvö rúmgóð svefnherbergi og lítil forstofa þar sem gengið er út á góða verönd til suðurs og vesturs.

Byggingarár hússins er skráð 1919 en réttara er, að það hafi verið byggt í kringum 1930.

Nánari lýsing, neðri hæð ;

Þvottahús , parket á gólfi. Lítil innrétting fyrir þvottavél, hillur og góður fataskápur. Nýleg útihurð.

Baðherbergið , flísar á gólfi og hluta veggja, gólfhiti, sturta og gluggi með opnanlegu fagi. Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 6 árum síðan.

Stofa parket á gólfi. Timburstigi upp á aðra hæð.

Eldhúsið var gert upp fyrir 6 árum síðan, rúmgóð hvít innrétting, parket á gólfi.

Efri hæð ;

Gangur , parket á gólfi, hurð inn í forstofu af gangi.

Forstofa , flögumálað gólf, nýleg útihurð sem liggur út á verönd.

Svefnherbergin eru tvö, parket á gólfum herbergja og fataskápur í öðru þeirra.

Lúga upp á risloft er á gangi.

Risið er óinnréttað, einangrun liggur á gólfborðum.

Góð verönd er við húsið og snýr hún til suðurs og vesturs, hún var smíðum fyrir um fjórum árum.

Lítil geymsla er undir verönd til vesturs.

Aðrar upplýsingar frá seljendum;

- Húseignin var máluð utan fyrir um 6 árum síðan.

- Baðherbergi og eldhús voru endurnýjuð fyrir 6 árum síðan.

- Búið er að endurnýja gólfefni á neðri hæð nýlega

- Frárennsli frá húsinu var endurnýjað að mestu 2025.

- Búið er að endurnýja gler í fjórum gluggum á neðri hæð og einum á efri hæð.

- Hluti af innbúi getur fylgt með við kaupin.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita;

Arnar s; 898-7011 / arnar@eignaver.is

Begga s; 845-0671 / begga@eignaver.is

Tryggvi s; 862-7919 / tryggvi @eiganver.is