Hamraborg 38

200 Kópavogur

Ásett verð: 58.900.000 kr.

Hamraborg 38
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
71,7 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1978
Fermetraverð
821.478 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð og björt 71,7 m2, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Hamraborg 38 í Kópavogi. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Eignin skiptist í svefnherbergi,

forstofuhol, geymslu innan íbúðar, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Eigninni tilheyra sameiginleg bílastæði í bílakjallara. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í heilsugæslu, bókasafn, verslun, almenningssamgöngur, leik- og grunnskóla ásamt menntaskóla.

Samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi þá var þakið lagfært og settur nýr þakpappi. Farið var í lagnakerfið og skipt í nýjar lokur, skipt á einhverjum lögnum, slaufuloka lagaðir og lagnirnar merktar. Verið er að klára múrviðgerðir á suður- og vesturhlið hússins. Greitt verður fyrir yfirstandandi framkvæmdir með inneign úr framkvæmdasjóð húsfélags.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:

Forstofuhol er með fataskápum og parketi á gólfi.

Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parket á gólfi.

Borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt.

Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, salerni, baðinnréttingu og sturtu með sturtugleri.

Geymsla er innan íbúðar með hillum og parketi á gólfi.

Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Sameiginleg bílastæði í bílakjallara .

Verð kr. 58.900.000,-