Hafursstaðir Dalabyggð

371 Búðardalur

Hafursstaðir Dalabyggð
Tegund
Lóð
Stærð
42,4000015258789 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0

Lýsing

Fasteignamiðstöðin er með til sölu eignina Hafursstaðir á Fellströnd í Dalabyggð, 371 Búðardalur. Fastanúmer 211-7640, landnúmer 137757.

Jörðin er vel gróin og býr yfir stórkostlegum útivistarmöguleikum. Hólsá rennur við jörðina og í henni er fallegur foss, Hrafnafoss. Gott berjaland, rjúpnaveiði o. m.fl.

Hafursstaðir eru 10,67 ferkm. eða 1.067 hektarar.

Hafursstaðir tengjast þjóðvegunum Vestfjarðavegi nr. 60 og Klofningsvegi nr. 590 (lagning slitlags hófst á árinu 2023). Þangað er 20 mín. akstur frá Búðardal.

Þriggja fasa rafmagn liggur um jörðina.

Nýlagður ljósleiðari er skammt frá íbúðarhúsi.

Stórkostlegt land í mjög friðsælu umhverfi og í miðju sögufrægs héraðs.

Á jörðinni er lítið gamalt íbúðarhús í döpru ástandi. Tún hafa verið nytjuð frá Breiðabólsstað um árabil.

Næstliggjandi jarðir eru Hóll og Breiðabólsstaður, fjær eru Ketilsstaðir og Kaldakinn.

Gott land sem tilvalið er undir sumarhús og/eða smáhýsi.

Landið er tilvalið til skógræktar, kolefnisjöfnunar, en skógrækt er á Hóli, næstu jörð.

Möguleikar á smávirkjun, vatnsafl.

Hugsanleg laxarækt og möguleg laxveiði í Hólsá/Skoravíkurá.

Tilboð óskast.

Tilvísunarnúmer: 10-2536 / 30-3919

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000

tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is

Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir

Eftir lokun skiptiborðs:

Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is

Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is

María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,

til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta

fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.