Hörðaland 10
108 Reykjavík
Ásett verð: 77.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 84,5 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1968
- Fermetraverð
- 921.893 kr.
Lýsing
Miklaborg kynnir:
Virkilega björt og vel skipulögð 3ja til 4ra herbergja, 85 fm íbúð á 2.hæð (miðhæð) í vel viðhöldnu litlu fjölbýli með svölum í suður.
NÁNARI LÝSING : Komið inn í hol með skápum. Eldhús er með fallegri, nýlegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Stofan er rúmgóð og björt og skipist í stofu, borðstofu og sjónvarpshol. Útgengt er frá stofu á stórar suðursvalir. Hjónaherbergi er sérlega rúmgott og með skápum. Gott barnaherbergi. Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni og góð innrétting. Við baðherbergið er búið að útbúa aðstöðu fyrir þvottavél og þurrrkara. Í kjallara er góð geymsla.
GÓLFEFNI: Fallegt viðarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.
Að sögn eiganda þá hefur bæði sameign og íbúðin sjálf verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Skipt var um járn og pappa á þaki, allir gluggar og gler á suðurhlið endurnýjaðir. Eigandi endurnýjaði bæði baðherbergi og eldhús nýlega.
Björt og falleg eign með svölum í suður á frábærum stað í Fossvoginum.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is