Bogatröð 17
262 Reykjanesbær
Ásett verð: 89.900.000 kr.

- Tegund
- Atvinnuhúsnæði
- Stærð
- 372 m²
- Herbergi
- 1
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 0
- Byggingarár
- 1960
- Fermetraverð
- 241.667 kr.
Lýsing
Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu Bogatröð 17, 262 Reykjanesbæ. Um er að ræða 372 m² atvinnuhúsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ. Húsið er stálgrindarhús, byggt árið 1960 og skráð til iðnaðarnota. Eignin hentar vel fyrir margvíslega starfsemi, svo sem iðnað, verkstæði, lager eða aðra þjónustu.
Möguleiki er að fá eignina leigða einnig.
Lýsing eignar: Húsið er einn opinn salur með góðri lofthæð. Stór innkeyrsluhurð er á norðurgafli og gönguhurðir á báðum göflum. Salurinn er einangraður, vel upplýstur og með gluggum á suðurgafli. Gólf er steypt og með merktum akstursleiðum. Hitablásarar eru í lofti og lagnagrind á vegg.
Inn af salnum er búið að innrétta starfsmannaaðstöðu. Þar er snyrting með handlaug og búningsskápum og kaffistofa með eldhúsaðstöðu. Einnig er lítið tæknirými.
Lóðin er rúmgóð og býður upp á gott athafnasvæði í kringum húsið.
Staðsetningin er mjög góð. Ásbrú er vaxandi atvinnu og þjónustusvæði, steinsnar frá Keflavíkurflugvelli og með greiða tengingu við Reykjanesbraut. Á svæðinu er fjölbreytt starfsemi og stutt í alla helstu þjónustu í Reykjanesbæ.
Eignin stendur á 1.520 m² leigulóð. Fasteignamat ársins 2026 er 47.750.000 kr. og fasteignamat ársins 2027 verður 52.350.000 kr. Brunabótamat er 135.550.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896 5464 eða á netfanginu brynjar@studlaberg.is.